Færsluflokkur: Bloggar

Um Þakkarræðu Obama forseta.

Obama forseti hélt glimrandi ræðu er hann þakkaði Nobelsnefndinni fyrir friðarverðlaunin. Hann kom víða við. Þetta var ekki auðvelt fyrir valdamesta mann heims sem er á kafi í tveimur styrjöldum að veita viðtöku friðarverðlaunum. En honum brást ekki bogalistin.  Hann fullyrti að stundum yrði að stríða til að skapa frið hann fullyrti að ekki hefðu dugað neinar friðsamlegar aðgerðir í anda Gandis og Dr. Martin Luther Kings til að stöðva heri Hitlers eða samningaviðræður myndu stöðva Alqaida.  En kærleiksboðskapurinn sem þeir boðuðu og trú þeirra á mannlegar framfarir  á samt að vera pólstjarnan sem við höfum að leiðarljósi.

Hann fjallaði um hvernig trúarlegir öfgasinnar hefðu snúið trúarbrögðum á höfuðið og réttlætt hryllilegar  aðgerðir í nafni trúar. En eins og hann sagði þá væri gullna reglan kjarni allra trúarbragða. Það að við eigum að gera öðrum það sem við viljum að aðrir geri okkur.  Hann sagði að kærleiks lögmálið væri aðalbarátta mansins við sitt innra eðli   Og áfram uppörvaði hann látum guðdómsneistann sem fyrirfinnst innst inni í sálum allra manna leiða okkur, vinnum að og sækjumst eftir að skapa heiminn eins og hann ætti að vera. Sækjumst eftir réttlætinu og þrátt fyrir erfiðar niðurlægingar vinnum að virðingu. Það koma til með að verða áfram stríð en sækjumst eftir friði. Það er von fyrir mannkynið  Þetta er verkefni okkar jarðarbúa í dag.

Sagði Barack Obama í þakkarræðu sinni. Það er traustvekjandi að svona vel hugsandi maður sé valdamesti maður heimsins í dag.

 
mbl.is Skiptar skoðanir um friðarverðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkir af peningum

Mig langar að segja frá smáfrétt á dögunum  í norska sjónvarpinu. Norski olíusjóðurinn hefur náð hæstu hæðum og er nú um 2550 tvö þúsund fimmhundruð og fimmtíu miljarðar norskra krona Eða um 56.000 fimmtíu og sex þúsund miljarðar ísl. króna. Þetta eftir metgróða á þriðja ársfjórðungi 2009 eða 349 miljarða nkr.

En það er eins og þetta þyki varla fréttnæmt hér, það er  alltaf miklu meira af neikvæðum fréttum. en nokkuð er það að engin kreppa virðist vera í Noregi og húsnæðisverð bara hækkar og hækkar og spáð að jólaverslunin nái nýju meti nú í ár.


Áfram Ísland

Íslensk þjóð stendur frammi fyrir efnahagslegum vandamálum,sem hún verður að takast á við. En Efnahagsleg vandamál mega ekki buga þjóðina andlega. Neikvæðu fréttirnar og endalaust nöldrið má ekki yfirþyrma allt.

Það verður að skapa grundvöll fyrir uppbyggingu með jákvæðu hugarfari. Þjóðin þarfnast bjartsýni um uppbyggingu, samstöðu um leiðir til að vinna sig út úr erfiðleikum.

Endalausar neikvæðar óvildarhugsanir um orsakir bankahruns og kreppu mega ekki blinda svo mikið að menn sjái ekki til sólar. Lykilorð eru jákvæðni, bjartsýni og trú á alla þá gríðarlegu möguleika sem eru fyrir hendi í landinu. Nýting á þeim miklu auðlindum sem finnast á Íslandi.

Mikill mannauður í hámenntaðri þjóð, allir dugnaðarforkarnir, fjöldi sérfræðinga á öllum sviðum, fjöldi heiðarlegra gáfnaljósa sem geta bent á skynsamlegar leiðir til lausna og til viðbótar gríðarleg náttúruleg auðævi í landinu.

Það er lífsnauðsynlegt að allir hugsi jákvætt til framtíðar Íslands og taki þátt í að virkja samstöðumátt þjóðarinnar til endurreisnar atvinnulífs og góðs mannlífs á íslandi.

Áfram Ísland


Þung umferð og snjóþekja

Ég hef oft furðað mig á því hversvegna alltaf er talað um Þunga umferð. (Heavy Trafik). Umferð þyngist, umferðarþungi ogs.frv. Í stað þess að nota orðin Umferð eykst, umferð er mikil umferð er að aukast.

Svo vil ég líka minnast á orðið "snjóþekja".  Hvers vegna  ekki að nota orðin snjóföl, snjór á vegi. grátt í rót, snjólag.  En ekki alltaf snjóþekja.


Verið varkár varist slysin

Fyrrr á árum var þetta hógværa slagorð notað til að minna okkur á að fara varlega í umferðinni.

Nú þegar skammdegið hellist yfir er aldrei meiri þörf að fara varlega og sýna varkárni í umferðinni.

Myrkur, bleyta, hálka, snjóföl og hross á vegum geta verið slysavaldaar eins og dæmin sanna.

Verið varkár varist slysin finnst mér vera slagorð ennþá í fullu gildi.

Mér hefur síður geðjast að slagorðum sem virka eins og hótanir. "ertu á fullri ferð inn í eylífðina"

hraðinn drepur ogsfrv. 


Hvað er að gerast á Íslandi

Getur þetta verið satt. Í stað endurgreiðslu á miljarða tapi sem þjóðin hefur orðið fyrir, ætli Kaupþing   að gefa  eftir tugi miljarða króna til að tryggja áfram eignaraðild og einokunaraðstöðu fyrirtækis á matvörumarkaði. Þetta gengur ekki upp.


mbl.is Tugmilljarða afskriftir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Kristján Baldursson

Höfundur

Kristján Baldursson
Kristján Baldursson
Á heima í Oslo en fylgist vel með umræðunni á Íslandi

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • KB3

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband